6 - 9 ára
2018, 2019, 2020
Vikurnar:
6.-10. júlí
13.-17. júlí
Skúr við hlið Urriðaholtsskóla
Um Þórunni
*
Um Þórunni *
Þórunn Snjólaug Gunnarsdóttir heiti ég og er 27 ára gömul. Ég starfa í Urriðaholtsskóla á leikskólastigi, auk þess sem ég er mikill listunnandi og -áhugakona. Ég hef teiknað og skapað síðan ég var barn og hef metnað fyrir því að leiðbeina börnum á sinni listrænu vegferð.
Um námskeiðið
*
Um námskeiðið *
Námskeiðið er frá klukkan 9 - 13, mánudag til föstudags og er haldið í skúr við hliðina á Urriðaholtsskóla.
Hvern dag er nýtt viðfangsefni eða þema sem við vinnum út frá. Börnin fá að geyma listaverkin sín í möppu sem er merkt þeim og Þórunn heldur utan um. Í lok námskeiðs fá þau svo að taka með sér heim bók, sem inniheldur öll listaverk vikunnar, auk tómra blaðsíðna í lokin til að bæta við fleirum.
Hádegismatur er kl. 11:30. Þegar börnin hafa lokið við að borða, fá þau að leika sér með krítar, sippubönd og sápukúlur sem eru í boði. Þá förum við aftur inn og klárum daginn þar.
Í vikunni er farið í tvær stuttar vettvangsferðir, göngutúr að tína blóm og heimsókn á Hönnunarsafn Íslands. Foreldrar fá svo sendar myndir af barninu sínu í tölvupósti, þegar námskeiðinu er lokið.
mánudagur
Teiknimyndapersónur
þriðjudagur
Sjálfsmynd
miðvikudagur
Blóm og plöntur
fimmtudagur
Dýrin
föstudagur
Klára verkefni
Skreyta bók
Frjálst
(Með fyrirvara um breytingar)
Verðskrá:
24.500 kr. án hádegismatar
29.500 kr. með hádegismat
ATH!
4.500 kr. greiðast í staðfestingargjald um leið og skráning fer fram.
Skráningarfrestur er til 15. júní.