6 - 9 ára

2018, 2019, 2020

Vikurnar:

6.-10. júlí

13.-17. júlí

Um Þórunni

*

Um Þórunni *

Þórunn Snjólaug Gunnarsdóttir heiti ég og er 27 ára gömul. Ég starfa í Urriðaholtsskóla á leikskólastigi, auk þess sem ég er mikill listunnandi og -áhugakona. Ég hef teiknað og skapað síðan ég var barn og hef metnað fyrir því að leiðbeina börnum á sinni listrænu vegferð.

Um námskeiðið

*

Um námskeiðið *

Námskeiðið er frá klukkan 9 - 13, mánudag til föstudags. Hvern dag er nýtt viðfangsefni eða þema sem við vinnum út frá. Börnin fá að geyma listaverkin sín í möppu sem er merkt þeim og Þórunn heldur utan um. Í lok námskeiðs fá þau svo að taka með sér heim bók, sem inniheldur öll listaverk vikunnar, auk tómra blaðsíðna í lokin til að bæta við fleirum. Hádegismatur er kl. 11:30. Þegar börnin hafa lokið við að borða, fá þau að leika sér með krítar, sippubönd og sápukúlur sem eru í boði. Þá förum við aftur inn og klárum daginn þar. Í vikunni er farið í tvær stuttar vettvangsferðir, göngutúr að tína blóm og heimsókn á Hönnunarsafn Íslands. Foreldrar fá svo sendar myndir af barninu sínu í tölvupósti, þegar námskeiðinu er lokið.

mánudagur

Teiknimyndapersónur

þriðjudagur

Sjálfsmynd

miðvikudagur

Blóm og plöntur

fimmtudagur

Dýrin

föstudagur

Klára verkefni

Skreyta bók

Frjálst

(Með fyrirvara um breytingar)